Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í landsliðshópnum sem mætir Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni í fótbolta.
Ísland leikur við Svartfjallaland 16. nóvember og Wales 19. nóvember og fara báðir leikir fram á útivelli.
„Þetta var sameiginleg ákvörðun hjá mér og landsliðsþjálfurunum að ég myndi hvíla í þessu verkefni. Fjölskylduaðstæður og annað spilar inn í.
Ég er sultuslakur yfir þessu,“ sagði Gylfi við Hjörvar Hafliðason í hlaðvarpinu Dr. Football.
Hinn 35 ára gamli Gylfi er markahæstur í sögu landsliðsins með 27 mörk í 83 leikjum.