Tinna Bjarkar Jónsdóttir, leikjahæsta kona í sögu Gróttu, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
Tinna er uppalin í Gróttu og hefur alla tíð leikið með félaginu.
Hún er 28 ára gömul og á að baki 133 leiki fyrir Gróttuliðið en í þeim hefur hún skorað 48 mörk.
Tinna var ein af stofnendum meistaraflokks kvenna árið 2016 og var fyrirliði liðsins á árunum 2021 til 2023.
Tinna var lykilleikmaður í liði Gróttu allan sinn feril en var í minna hlutverki í ár þar sem hún var að koma til baka eftir barnsburð.