Pétur tekur við HK

Pétur Rögnvaldsson.
Pétur Rögnvaldsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Pétur Rögnvaldsson er nýr þjálfari kvennaliðs HK í knattspyrnu. 

Pétur tekur við af Guðna Þór Einarssyni sem hætti eftir nýliðið tímabil. 

Pétur snýr aftur til þjálfunar eftir árspásu en hann var síðast annar af tveimur þjálfurum kvennaliðs Gróttu. 

HK hafnaði í fjórða sæti 1. deildarinnar á nýliðinni leiktíð og var aðeins fjórum stigum frá því að komast upp í deild þeirra bestu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert