„Þetta var einstök atburðarrás og það hefði verið full mikið að ætla að leika hana eftir,“ sagði Íslandsmeistarinn og knattspyrnumaðurinn Höskuldur Gunnlaugsson í Dagmálum.
Höskuldur varð Íslandsmeistari í annað sinn á dögunum með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki eftir sigur gegn Víkingi úr Reykjavík í Fossvoginum en Höskuldur hefur verið fyrirliði Breiðabliks frá árinu 2020.
Breiðablik neitaði að nota gestaklefann á Víkingsvelli í leik liðanna á síðustu leiktíð og mætti því nokkrum mínútum fyrir leik á rútu þar sem leikmenn liðsins gengu beint út á völlinn.
„Allir leikmannahópurinn hefði gert allt það sem Óskar lagði fyrir okkur,“ sagði Höskuldur.
„Mér fannst þetta algjör snilld og þegar ég horfi til baka þá var þetta ekkert eðlilega skemmtilegt uppátæki. Þetta kryddaði upp á þennan afþreyingarbransa og maður saknar rimmanna milli Óskars og Arnars,“ sagði Höskuldur meðal annars.
Viðtalið við Höskuld í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.