Yfirgefur Íslandsmeistarana

Oliver Sigurjónsson fagnaði Íslandsmeistaratitli í tvígang með uppeldisfélaginu.
Oliver Sigurjónsson fagnaði Íslandsmeistaratitli í tvígang með uppeldisfélaginu. mbl.is/Ólafur Árdal

Knattspyrnumaðurinn Oliver Sigurjónsson fer frá Íslandsmeisturum Breiðabliks þegar samningur hans við uppeldisfélagið rennur út aðra helgi.

Oliver, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, tilkynnti um fyrirhugaða brottför sína á Instagramaðgangi sínum í dag.

Hann á að baki 152 leiki í efstu deild, alla fyrir Breiðablik, þar sem Oliver hefur skorað fimm mörk. Varð hann Íslandsmeistari með liðinu í ár og 2022.

Miðjumaðurinn er 29 ára gamall og hyggst nú finna sér nýtt félag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert