Gerðar hafa verið tvær breytingar á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir leikina við Svartfjallaland og Wales.
Kolbeinn Birgir Finnsson og Daníel Leó Grétarsson eru meiddir og geta því ekki tekið þátt í verkefninu. Í þeirra stað koma Dagur Dan Þórhallsson og Hlynur Freyr Karlsson.
Dagur er leikmaður Orlando City í bandarísku MLS-deildinni og hefur spilað fimm landsleiki. Hlynur er Brommapojkarna í Svíþjóð og á einn landsleik að baki en hann var gegn Hondúras í byrjun ársins.