Snýr aftur í Garðabæinn

Birna Jóhannsdóttir er komin aftur til Stjörnunnar.
Birna Jóhannsdóttir er komin aftur til Stjörnunnar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Birna Jóhannsdóttir er gengin aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna. Kemur hún frá HK.

Birna er 23 ára gömul og getur leyst nokkrar stöður á vellinum. Ásamt því að leika með HK í 1. deild á síðasta tímabili lék hún með Álftanesi í 2. deild sumarið 2023.

Þar á undan hafði hún leikið 40 leiki í efstu deild fyrir Stjörnuna og skorað í þeim fjögur mörk.

Fyrstu leikina í efstu deild spilaði Birna sumarið 2016 þegar hún var aðeins 15 ára gömul.

„Við óskum bæði félaginu og Birnu innilega til hamingju og tökum vel á móti henni!“ sagði meðal annars í tilkynningu frá Stjörnunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert