Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði í dag á þjóðarleikvangi Svartfjallalands í Podgorica.
Ísland mætir Balkanþjóðinni í Þjóðadeildinni á morgun í Niksic þar sem völlurinn í Svartfjallalandi er óleikfær að mati eftirlitsmanna UEFA.
Blaðamaður mbl.is var á vellinum í Podgorica í dag og tók eftirfarandi myndir af vellinum sem sýna slæmt ástand hans.