Willum Þór Willumsson er í hörðum slag á toppi C-deildar Englands í fótbolta með liði sínu Birmingham. Liðið féll úr B-deildinni á síðustu leiktíð en hefur eytt miklum peningum í að byggja sterkt lið sem á að fara beint aftur upp.
„Birmingham er búið að eyða miklum peningum, sérstaklega miðað við þessa deild, og stuðningsmenn andstæðinganna syngja gjarnan um okkur vegna þessa.
Þeir syngja um að það hafi verið peningaeyðsla að kaupa okkur. Það er partur af þessu og gerir þetta bara enn skemmtilegra.
Það gerir það enn skemmtilegra að fagna fyrir framan stuðningsmenn andstæðinganna. Stuðningsmenn syngja síðan í átt til hvor annars og þetta er mjög gaman,“ sagði Willum í samtali við mbl.is.