Kristófer Sigurgeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fylkis í knattspyrnu.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Kristófer mun aðstoða Árna Frey Guðnason sem var ráðinn þjálfari liðsins á dögunum.
Kristófer var aðstoðarþjálfari kvennaliðs Víkings úr Reykjavík á síðustu leiktíð en hann hefur einnig þjálfað karlalið Leiknir úr Reykjavík og þá var hann aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar hjá Breiðabliki.
Fylkir hafnaði í 12. og neðsta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og leikur því í 1. deildinni næsta sumar.