Yfirgefur herbúðir HK

Birkir Valur Jónsson hefur ákveðið að róa á önnur mið.
Birkir Valur Jónsson hefur ákveðið að róa á önnur mið. mbl.is/Hákon

HK hefur tilkynnt að varnarmaðurinn Birkir Valur Jónsson hefur yfirgefið herbúðir félagsins.

Birkir Valur, sem er 26 ára, hefur leikið með HK allan sinn meistaraflokksferil fyrir utan hálfs árs dvöl hjá Spartak Tranava.

Hann er einn leikjahæsti leikmaður í sögu HK með 250 leiki. Hann var í stóru hlutverki hjá liðinu í sumar en hann spilaði 26 af 27 leikjum HK í Bestu deildinni.

Birkir Valur er þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur HK eftir tímabilið en Eiður Gauti Sæbjörnsson og Atli Hrafn Andrason hafa einnig gert það. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert