Knattspyrnukonan Anna Rakel Pétursdóttir hefur framlengt samning sinn við Val.
Anna Rakel, sem er 26 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning á Hlíðarenda en hún gekk til liðs við Val frá Linköping í Svíþjóð árið 2021.
Hún er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2017 en hún hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari með Valskonum.
Alls á hún að baki 129 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 18 mörk. Þá á hún að baki sjö A-landsleiki fyrir Ísland.