Hörður Snævar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Dalvíkur/Reynis í knattspyrnu.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Hörður Snævar tekur við liðinu af Dragan Stojanovic sem stýrði liðinu á síðustu leiktíð.
Siguróli Kristjánsson verður Herði Snævari innan handar sem tæknilegur ráðgjafi í þjálfarateyminu að því er fram kemur í tilkynningu félagsins.
Hörður Snævar er ritstjóri vefmiðilsins 433.is en Dalvík/Reynir hafnaði í 12. og neðsta sæti 1. deildarinnar og leikur því í 2. deildinni á komandi keppnistímabili.