Úr Garðabænum á Hlíðarenda

Hrafnhildur Salka Pálmadóttir.
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir. Ljósmynd/Stjarnan

Knattspyrnukonan Hrafnhildur Salka Pálmadóttir er að ganga til liðs við Val frá Stjörnunni.

Þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum en Hrafnhildur Salka, sem er fædd árið 2008, lék níu leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar.

Þá lék hún sjö leiki með HK í 1. deildinni, þar sem hún var á láni fyrri hluta tímabilsins, og skoraði í þeim þrjú mörk.

Hrafnhildur Salka hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og á að baki 17 landsleiki með yngri landsliðunum þar sem hún hefur skorað eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert