Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, leikur undir stjórn Wayne Rooney hjá enska B-deildarliðinu Plymouth. Rooney átti gríðarlega farsælan feril sem leikmaður og lék lengi með Manchester United og var fyrirliði enska landsliðsins.
„Það er mjög fínt að spila fyrir hann. . Ég þekki hann og hans starfsfólk. Hann er þessi gamaldags breski þjálfari. Starfsfólkið hans sér um æfingarnar og þetta taktíska.
Hann er meira að þjálfa maður á mann, þótt hann sé alltaf á æfingasvæðinu. Hann er stjórinn og svo er hann með þjálfarana í kringum sig,“ sagði Victor um Rooney, sem er stórt nafn á Englandi.
„Við finnum hvað hann er stór. Alls staðar sem við förum er fólk að bíða eftir honum. Hann er eitt stærsta nafnið sem til er í enskum fótbolta,“ sagði Guðlaugur.