Heldur tryggð við KA

Bjarni Aðalsteinsson.
Bjarni Aðalsteinsson. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Bjarni Aðalsteinsson hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem gildir út tímabilið 2026. 

Þetta staðfesti KA á samfélagsmiðlum í dag. 

Bjarni hefur verið lykilmaður í liði KA undanfarin ár og er uppalinn hjá félaginu en meistaraflokksferilinn hóf hann sem lánsmaður með Dalvík/Reyni og Magna.

Alls hefur hann spilað 105 leiki með KA í efstu deild og skorað 8 mörk, og samtals rúmlega 150 mótsleiki með félaginu, en hann varð bikarmeistari með liðinu í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka