Íslandsmeistarinn áfram í Kópavoginum

Katrín Ásbjörnsdóttir.
Katrín Ásbjörnsdóttir. mbl.is/Ólafur Árdal

Knattspyrnukonan Katrín Ásbjörnsdóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Katrín, sem er 31 árs gömul, skrifaði undir eins árs samning við Blika.

Hún skoraði átta mörk í 20 leikjum með Blikum í sumar þegar liðið varð Íslandsmeistari en hún gekk til liðs við Blika frá Stjörnunni fyrir tímabilið 2023.

Alls á hún að baki 214 leiki í efstu deild og 93 mörk með Breiðablik, Stjörnunni, KR og Þór/KA. Þá á hún að baki 19 A-landsleiki fyrir Ísland og eitt mark 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert