Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fjölnis í knattspyrnu. Skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið.
Ásgeir Frank er 28 ára gamall og þjálfaði síðast Hvíta riddarann í 3. deild karla. Auk þess lék hann með liðinu og sömuleiðis Aftureldingu í 1. deildinni á síðasta tímabili þegar síðarnefnda liðið komst upp í efstu deild í fyrsta sinn.
Fjölnir leikur í 1. deildinni og tapaði í undanúrslitum umspils um sæti í Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Ásamt því að vera aðstoðarþjálfari karlaliðsins verður Ásgeir Frank leiðandi í afreksstarfi Fjölnis í samvinnu við yfirþjálfara félagsins og þjálfara 2. og 3. flokks karla.