Knattspyrnumaðurinn Andri Adolphsson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna sem gildir í eitt ár, til loka tímabilsins 2025.
Andri er 31 árs kantmaður sem hefur verið á mála hjá Stjörnunni undanfarin tvö ár. Hann missti þó alveg af seinni hluta tímabilsins í ár vegna meiðsla.
Hann hóf meistaraflokksferilinn hjá ÍA en lék lengst af með Val, frá 2015 til 2022.
Alls á Andri að baki 149 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað tólf mörk.
Hjá Val varð hann þrisvar Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari.