Framarar halda áfram að styrkja sig

Kristófer Konráðsson er genginn til liðs við Fram.
Kristófer Konráðsson er genginn til liðs við Fram. Ljósmynd/Fram

Knattspyrnudeild Fram hefur samið við Kristófer Konráðsson um að hann leiki með liðinu næstu tvö ár.

Kristófer, sem er 26 ára miðjumaður, kemur á frjálsri sölu frá Grindavík eftir að hafa leikið með liðinu í 1. deild undanfarin tvö ár.

Hann er alinn upp hjá Stjörnunni og hóf meistaraflokksferilinn þar en hefur einnig leikið með Leikni úr Reykjavík, Þrótti úr Reykjavík og KFG.

Alls á Kristófer 39 leiki að baki í efstu deild, 47 leiki og fimm mörk í 1. deild og 14 leiki og sex mörk í 2. deild með KFG.

Kristófer er fimmti leikmaðurinn sem Fram fær í sínar raðir í vetur og allir léku þeir í 1. deildinni á síðasta tímabili. Hinir eru Viktor Freyr Sigurðsson markvörður og Róbert Hauksson sem komu frá Leikni R., Sigurjón Rúnarsson sem kom frá Grindavík og Óliver Elís Hlynsson sem kom frá ÍR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert