Sænska stórliðið Djurgården hefur áhuga á að kaupa Ara Sigurpálsson, kantmann Víkings R., í vetur.
Samkvæmt X-síðu tengdri Djurgården hefur liðið heillast af frammistöðu Ara í íslensku deildinni sem og í Sambandsdeild Evrópu.
Víkingur R. og Djurgården mætast einmitt í 5. umferð Sambandsdeildarinnar þar sem Ari fær tækifæri til að heilla Svíana enn meira.
Talið er líklegt að félagið muni reyna að kaupa hann frá Víkingum í vetur.
🚨Djurgården har scoutat den kommande ECL-motståndaren Vikingur och fastnat för den 21-årige yttern Ari Sigurpálsson. Man kommer enligt våra uppgifter göra ett värvningsförsök i vinter. Islänningen har den här säsongen stått för 10 mål och 10 assist i alla turneringar. pic.twitter.com/lwJz3I31sh
— Djurgården - Silly (@diffensilly) November 23, 2024