Enn einn uppaldi heim í KR

Atli Hrafn Andrason er kominn heim í KR.
Atli Hrafn Andrason er kominn heim í KR. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnumaðurinn Atli Hrafn Andrason er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt KR frá HK. 

Þetta kemur fram í tilkynningu KR-inga en Atli Hrafn, sem er 25 ára gamall, ólst upp hjá KR. 

Hann fór ungur út í akademíu Fulham á Englandi en hann kom heim 2018 og hefur síðan þá spilað með Víkingi úr Reykjavík, Breiðabliki, ÍBV og nú síðast með HK undanfarin tvö ár. 

Atli lék 23 af 27 leikjum HK í Bestu deildinni á þessu ári og skoraði tvö mörk. Samtals hefur hann leikið 116 leiki í efstu deild og skorað í þeim 10 mörk.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR heldur áfram að sækja leikmenn sem hann þjálfaði í yngri flokkum KR en Atli Hrafn er einn þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert