Knattspyrnumennirnir Eiður Gauti Sæbjörnsson og Vicente Valor eru gengnir til liðs við KR.
Eiður Gauti, sem er 25 ára gamall, gerir tveggja ára samning í Vesturbænum en hann var í stóru hlutverki hjá HK á síðustu leiktíð.
Hann er uppalinn hjá HK en hefur aðallega spilað með venslafélaginu Ými í 3. og 4. deild undanfarin ár. Eiður kom öflugur inn í lið HK í ár og skoraði þrjú mörk í 13 leikjum í Bestu deildinni og þá skoraði hann samtals sex mörk fyrir Ými og HK í bikarkeppninni.
Vicente Valor, sem er 26 ára gamall spænskur sóknarmiðjumaður, gerir þriggja ára samning en hann kemur frá ÍBV. Hann lék 27 leiki fyrir ÍBV og skoraði 11 mörk á síðustu leiktíð en hann kom til Eyjamanna frá Bandaríkjunum.