Knattspyrnudeild Vestra hefur gengið frá samningi við Birki Eydal og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð.
Birkir, sem er 24 ára, hefur verið einn besti leikmaður Harðar á Ísafirði undanfarin ár á meðan hann hefur stundað nám erlendis á veturna.
Birkir er ekki aðeins góður í fótbolta því hann hefur einnig keppt með blakliði Vestra.
Hann hefur gert 19 mörk í 24 leikjum í 5. deild undanfarin tvö tímabil með Herði.