Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Víkings úr Reykjavík. Haukur, sem er 34 ára, hefur starfað sem yfirlögfræðingur KSÍ undanfarin níu ár.
Haukur tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 14 ár.
Haukur hefur sem yfirlögfræðingur KSÍ starfað að verkefnum sem snúa meðal annars að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna.
„Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdastjóra.
Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn.
Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar,“ sagði Björn Einarsson, formaður Víkings, í tilkynningu frá félaginu.