Framherjinn framlengir við Fram

Murielle Tiernan í leik með Fram á tímabilinu.
Murielle Tiernan í leik með Fram á tímabilinu. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Framherjinn öflugi Murielle Tiernan hefur framlengt samning sinn við knattspyrnufélagið Fram sem spilar í Bestu deild kvenna á næsta tímabili.

Murielle kom til Fram fyrir síðasta tímabil og var lykilleikmaður liðsins sem lenti í öðru sæti í næstefstu deild og komst upp í Bestu.

Hún var markahæsti leikmaður liðsins með 13 mörk í 18 leikjum og framlengdi samning sinn til 2025.

Hún hefur spilað 37 leiki í Bestu deild með Tindastól þar sem hún skoraði 10 mörk.

Á sjö árum hér á landi hefur Murielle skorað 111 mörk í 120 leikjum í þremur efstu deildum Íslandsmótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert