Knattspyrnukonan Guðrún Þóra Geirsdóttir er orðin leikmaður Fylkis. Hún kemur til Fylkis frá Selfossi og gerir tveggja ára samning við Árbæjarfélagið.
Guðrún, sem er Húsvíkingur, hóf meistaraflokksferilinn með Völsungi á heimaslóðum. Hún skipti síðan yfir til Selfoss árið 2021.
Hún hefur skorað eitt mark í 17 leikjum í efstu deild og sex mörk í 31 leik í 1. deild. Fylkir leikur í 1. deild á komandi tímabili eftir fall úr Bestu deildinni á árinu.