Fyrirliði Fylkis fer norður

Eva Rut Ásþórsdóttir.
Eva Rut Ásþórsdóttir. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Eva Rut Ásþórsdóttir, fyrrum fyrirliði Fylkis í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, hefur samið við Þór/KA.

Eva Rut er 23 ára miðjumaður og hefur spilað síðustu fimm tímabil með Fylki. Hún var í lykilhlutverki þegar Fylkir lenti í öðru sæti í næstefstu deild og tryggði sér sæti í Bestu deild árið 2023.

Hún spilaði alla 21 leiki Fylkis í Bestu deild á tímabilinu og skoraði átta mörk en liðið féll.

„Við erum himinlifandi með að fá Evu til okkar í Þór/KA,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA í tilkynningu liðsins. „Eva er fjölhæf með mikla hæfileika og reynslu sem á eftir að smellpassa inn í okkar lið. Ég er sannfærður um að Eva á eftir að taka næsta skref á sínum ferli hérna hjá okkur ásamt því að gera liðið okkar enn betra. Þetta er mikill fengur fyrir okkur og við hlökkum mikið til að vinna með henni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert