Stjarnan hefur samið við knattspyrnumanninn Hrafn Guðmundsson um að hann leiki með liðinu næstu þrjú ár, út tímabilið 2027.
Hrafn, sem er 18 ára gamall, kemur frá KR þar sem hann fékk samningi sínum rift undir lok síðasta árs.
Sóknarmaðurinn ólst upp hjá Aftureldingu þar sem Hrafn lék 35 leiki í næstefstu deild og skoraði tvö mörk. Hann lék þá fjóra leiki fyrir KR í Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Hrafn er sjöundi leikmaðurinn sem Stjarnan fær til liðs við sig fyrir komandi tímabil.