Þrír heimaleikir í viðbót erlendis

Framkvæmdir standa yfir á Laugardalsvellinum sem væntanlega getur tekið við …
Framkvæmdir standa yfir á Laugardalsvellinum sem væntanlega getur tekið við heimaleikjum á öllum tímum árs frá og með komandi sumri. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, leikur heimaleiki sína í milliriðli Evrópumótsins í þessum aldursflokki á Spáni í mars.

KSÍ skýrði frá þessu á heimasíðu sinni í dag en þegar dregið var í riðla fyrir milliriðilinn kom það í hlut Íslands að vera mótshaldari.

Samkomulag tókst á milli knattspyrnusambanda landanna um að spila á Spáni, væntanlega á Pinatar-svæðinu við Murcia, en Ísland mætir þar Belgíu, Spáni og Úkraínu dagana 8. til 14. mars. Sigurliðið í riðlinum kemst í úrslitakeppnina um Evrópumeistaratitilinn sem fer fram í Færeyjum í maí.

Þar með verða heimaleikirnir sem íslensk félagslið og landslið þurfa að spila erlendis vegna vallarskilyrða næstu mánuði orðnir fimm talsins. Víkingur mætir Panathinaikos í umspili Sambandsdeildar karla 13. febrúar, væntanlega í Danmörku, og karlalandsliðið mætir Kósóvó í heimaleiknum í umspili Þjóðadeildarinnar í Murcia á Spáni 23. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert