Spænski Íslendingurinn leggur skóna á hilluna

Diego Jóhannesson í landsleik gegn Katar.
Diego Jóhannesson í landsleik gegn Katar. AFP/Karim Jaafar

Fyrrum íslenski landsliðsmaðurinn Diego Jóhannesson hefur lagt skóna á hilluna aðeins 31 árs gamall.

Diego er fæddur og uppalinn á Spáni en hann er með íslenskt vegabréf í gegnum föður sinn.

Diego rataði í fréttirnar á Íslandi árið 2014 þegar hann var á mála hjá Real Oviedo en hann mætti Alfreð Finnbogasyni og félögum í Real Sociedad í spænska Konungsbikarnum.

Í kjölfarið fór Diego í viðtal og sagði að draumur hans væri að spila fyrir íslenska landsliðið.

Í janúar 2016 var Diego valinn í fyrsta skiptið í íslenska landsliðshópinn. Hann á þrjá A-landsleiki með Íslandi en sá síðasti kom árið 2017.

Árið 2022 meiddist Diego á hné en hann hefur ekki náð sér eftir meiðslin þrátt fyrir nokkrar aðgerðir.

Diego á að baki 172 leiki á ferlinum en hann spilaði með Real Oviedo frá 2014 til 2021 en hann hefur verið á mála hjá Albacete síðan 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert