Berglind Rós Ágústsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt Val.
Berglind Rós er 29 ára gamall miðjumaður sem bar fyrirliðabandið hjá Val þegar liðið varð bikarmeistari á síðasta tímabili.
Hún gekk til liðs við Val sumarið 2023 eftir nokkurra ára dvöl í atvinnumennsku þar sem hún lék með Örebro í Svíþjóð og Huelva á Spáni.
Alls á Berglind Rós 120 leiki að baki í efstu deild á Íslandi fyrir Val, Fylki og Aftureldingu, þar sem hún hefur skorað tíu mörk.
Hún á þá að baki 15 A-landsleiki og hefur skorað eitt mark.