Knattspyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson hefur sagt skilið við Víking úr Reykjavík eftir árs dvöl hjá félaginu sem styrktarþjálfari og leikmaður.
Óskar Örn er fertugur og leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi með 382 leiki. Kom hann við sögu í níu leikjum í Bestu deildinni hjá Víkingi á síðasta tímabili og þá sló hann jafnframt leikjametið í íslensku deildakeppninni í heild sinni þar sem hann á nú að baki 447 leiki.
Óskar er ennfremur leikja- og markahæstur í sögu KR í efstu deild með 73 mörk í 296 leikjum fyrir félagið.
„Við endursömdum ekki við Óskar Örn og hann er frjáls ferða sinna. Hvort hann haldi áfram verður hann að ákveða sjálfur,“ sagði Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, í samtali við Fótbolta.net.