Frá Selfossi í Árbæinn

Embla Katrín Oddsteinsdóttir
Embla Katrín Oddsteinsdóttir Ljósmynd/Fylkir

Knattspyrnukonan unga Embla Katrín Oddsteinsdóttir er komin til Fylkis frá Selfossi. Hún gerir tveggja ára samning við Árbæjarfélagið.

Embla, sem er 18 ára, var einn besti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð en gat ekki komið í veg fyrir fall úr 1. og niður í 2. deild.

Fylkiskonur féllu úr Bestu deildinni og niður í 1. deild á sama tíma. Leikmaðurinn spilaði 17 leiki í 1. deild með Selfoss á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert