Hafdís Nína Elmarsdóttir skoraði þrennu fyrir U16-ára landslið stúlkna í knattspyrnu þegar liðið vann öruggan sigur á Færeyjum, 6:0, í vináttulandsleik í Miðgarði í Garðabæ í kvöld.
Kara Guðmundsdóttir, leikmaður KR, skoraði fyrsta mark leiksins áður en Hafdís Nína, sem leikur með Þór frá Akureyri, skoraði tvívegis.
Staðan í hálfleik var því 3:0.
Strax í upphafi síðari hálfleiks fullkomnaði Hafdís Nína þrennuna og undir lokin bætti Anna Katrín Ólafsdóttir úr Álftanesi við fimmta markinu og Elísabet María Júlíusdóttir úr Breiðabliki skoraði svo sjötta markið.
Ísland og Færeyjar mætast aftur í vináttulandsleik í aldursflokknum á sunnudag, einnig í Miðgarði. Hefst sá leikur klukkan 13.