Kwadwo Duah, leikmaður Sviss hrósaði Jude Bellingham fyrir markið sem hann skoraði sem kom Englandi áfram í átta liða úrslit en sagði liðsfélaga sinn hafa skorað flottara mark á EM í fótbolta.
England mætir Sviss á morgun í átta liða úrslitum. Bellingham skoraði mark úr hjólhestaspyrnu sem jafnaði metin í 16-liða úrslitum gegn Slóvakíu, leikurinn endaði 2:1 fyrir Englandi.
Duah sagði mark Xherdan Shaqiri í riðlakeppninni gegn Skotlandi vera flottara mark en það sem Bellingham skoraði.
„Markið hjá Shaqiri var betra. Það var erfiðara að skora það heldur en fyrir Bellingham og þessvegna er það flottara,“ sagði Duah.
🇨🇭😍 Shaqiri's stunner vs Scotland! #EURO2024 pic.twitter.com/kxRszPzR4s
— EuroFoot (@eurofootcom) June 20, 2024
The script of this Jude Bellingham goal was straight out of a movie. Like 80 seconds to go, your country is about to be knocked out and you score an overhead kick like this to keep them in it. Just incredible. pic.twitter.com/ToGxcjahSM
— WolfRMFC (@WolfRMFC) July 1, 2024