Daniel Carvajal, Álvaro Morata og Robin Le Normand verða í leikbanni þegar Spánn mætir annaðhvort Frakklandi eða Portúgal í undanúrslitum á EM í fótbolta.
Spánn mætti heimamönnum í Þýskalandi í kvöld og unnu leikinn, 2:1 eftir framlengingu en 16 spjöld fóru á loft í leiknum sem Anthony Taylor dæmdi.
Normand fékk gult spjald í fyrri hálfleik þegar hann braut á Ilkay Gundogan en hann fékk einnig gult spjald gegn Georgíu í 16-liða úrslitum.
Carvajal fékk hans annað gula spjald og þar með rautt á lokamínútu leiksins.
Frakkland og Portúgal mætast í kvöld og þá verður ljóst hvor mætir Spánverjum í undanúrslitum 9. júní.