Roberto Martinez, þjálfari Portúgalska karlalandsliðið segir að enginn ákvörðun hafa verið tekin um framtíð Cristiano Ronaldo eða Pepe með portúgalska landsliðinu.
Ronaldo er 39 ára gamall og átti ekki mjög gott mót með landsliðinu. Hann átti 23 skot á markið og skoraði ekki úr neinu en lagði upp eitt mark og skoraði í tveimur vítaspyrnukeppnum.
Pepe er 41 árs gamall, elsti leikmaður í sögu EM, og stóð sig vel. Hann er þessa stundina án félags.
Portúgal datt úr leik í átta liða úrslitum gegn Frakklandi eftir vítaspyrnukeppni.
Martinez sagði að þeir hefðu ekki tekið ákvörðun um hvort þeir ætli að hætta að spila með landsdliðinu eða ekki.