Bjartsýnir Íslendingar í Innsbruck

Þorsteinn Þórólfsson, meðlimur Sérsveitarinnar.
Þorsteinn Þórólfsson, meðlimur Sérsveitarinnar. mbl.is/Gunnar Egill

„Við komum hingað á fimmtudag í síðustu viku og tökum alla leikina í riðlinum. Við vorum hérna á móti Hollandi og Úkraínu og núna á móti Þýskalandi,“ sagði Gauti Sigurgeirsson, meðlimur stuðningssveitarinnar Sérsveitin, sem er í Austurríki að styðja við íslenska kvennalandsliðið í handknattleik.

Fram undan er hreinn úrslitaleikur Íslands gegn Þýskalandi í F-riðli á EM 2024 í Innsbruck þar sem kemur í ljós hvort liðið fylgir Hollandi upp úr riðlinum og í milliriðil 2 í Vín.

„Það er heldur betur úrslitaleikur og ótrúlega skemmtileg staða sem er komin upp, að sigur þýðir það að við förum áfram. Okkur líst alveg frábærlega á þetta, þetta eru leikir sem við lifum fyrir að taka þátt í, þegar eitthvað er undir.

Við erum reyndar þekkt fyrir það að við leggjum aldrei árar í bát alveg sama hvernig staðan er. Þó útlitið sé svart hættum við aldrei. Að spila úrslitaleiki er alveg geggjað og ótrúlega gaman að taka þátt í því,“ sagði Gauti í samtali við mbl.is á hótelinu sem meðlimir Sérsveitarinnar dveljast á.

Gauti Sigurgeirsson býst við eins marks sigri.
Gauti Sigurgeirsson býst við eins marks sigri. mbl.is/Gunnar Egill

Beðinn um að spá fyrir um úrslit í leiknum, sem hefst klukkan 19.30 í kvöld, sagði hann:

„Við vonumst eftir sigri. Ætli við vinnum ekki með einu? 29:28.“

Er smá smeykur

Þorsteinn Þórólfsson er einnig meðlimur Sérsveitarinnar.

„Við erum búin að vera hérna allan tímann. Við komum hérna 28. nóvember og förum heim í fyrramálið. Við klárum riðilinn,“ sagði Þorsteinn við mbl.is.

Hann býst líkt og Gauti við hörkuleik.

„Mér líst ágætlega á leikinn en er smá smeykur. Þetta eru Þjóðverjar en íslensku stelpurnar eru búnar að sýna svakalega góða leiki og ég hef rosalega trú á þessum stelpum.“

Þorsteinn spáði loks í spilin:

„Þetta verður rosalega jafnt og ég er að fara að spá jafntefli, 26:26.“

Býst við fjögurra marka sigri

Sonja Steinarsdóttir, „költ“ leiðtogi Sérsveitarinnar að sögn Gauta, er bjartsýnust allra viðmælenda mbl.is.

Sonja Steinarsdóttir er sigurviss.
Sonja Steinarsdóttir er sigurviss. mbl.is/Gunnar Egill

„Þetta er rosalegt lið hjá Þýskalandi en hins vegar er okkar lið á fljúgandi siglingu og ég hef trú á íslenska hjartanu. Við erum öll búin að mynda frábæra stemningu þannig að ég hef bara fulla trú á því að þær taki þennan leik.

Ég giska á með fjórum mörkum. Ég held að vörnin okkar detti í gang þannig að þær þýsku skori ekki mjög mikið. Ég segi 28:24,“ sagði Sonja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert