Jóhann hættur við að hætta hjá Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson að skrifa undir nýjan samning.
Jóhann Berg Guðmundsson að skrifa undir nýjan samning. Ljósmynd/Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson kvaddi enska knattspyrnufélagið Burnley eftir síðasta tímabil en skrifaði undir nýjan samning við liðið í dag.

Hann fór í viðtal á samfélagsmiðlum félagsins þar sem hann fór yfir þau átta ár sem hann hefur verið hjá félaginu og þakkaði fyrir sig en liðið féll úr úrvalsdeild á síðasta tímabili.

„Ég er kominn aftur, ég er mjög ánægður. Síðast þegar ég sat hér var þetta tilfinningaríkt en það er enginn þörf á því núna,“ sagði Jóhann á samfélagsmiðlum liðsins. Hann var án félags meðan hann spilaði með íslenska landsliðinu í glugganum og er nú mættur aftur í Burnley.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert