Parið fer saman frá Villa til Juventus

ALisha Lehman í leik með Sviss.
ALisha Lehman í leik með Sviss. AFP/Sebastian Bozon

Sóknarmaðurinn Alisha Lehman er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa til ítalska stórveldisins Juventus en kærastinn hennar, Douglas Luiz, fór sömu leið í júní.

Lehman er 25 ára gömul og kom til Villa frá West Ham árið 2021. Hún hefur síðan spilað 75 leiki með Villa og skorað í þeim 14 mörk. Hún skrifaði undir samning til 30. júní 2027

Hún spilaði aðeins 17 leiki á síðasta tímabili þar sem hún var að glíma við meiðsli og skoraði í þeim þrjú mörk.

Lehmann hefur spilað með í Svissneska landsliðinu síðan 2017 og hefur spilað 52 leiki og skorað í þeim níu mörk.

Hún verður liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttir í Juventus.

 

 https://www.mbl.is/sport/enski/2024/06/30/lykilmadur_villa_til_juventus/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert