United býður aftur í varnarmanninn

Jarrad Branthwaite er eftirsóttur af Manchester United.
Jarrad Branthwaite er eftirsóttur af Manchester United. AFP/Paul Ellis

Manchester United hefur boðið 45 milljónir punda í knattspyrnumanninn Jarrad Branthwaite, varnarmann Everton. 

Enskir miðlar greina frá en talið er að Everton muni hafna tilboði United þar sem að félagið vill 65 til 70 milljónir punda fyrir leikmanninn. 

Branthwaite átti gott tímabil með Everton en hann lék 35 af 38 leikjum liðsins í deildinni. Þá spilaði hann sinn fyrsta landsleik fyrr á árinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert