Hver verður framherji Liverpool?

Arne Slot er nýr knattspyrnustjóri Liverpool.
Arne Slot er nýr knattspyrnustjóri Liverpool. AFP/Bart Stoutjesdijk

Liverpool mætir Real Betis í æfingaleik liðanna í Pittsburgh í Bandaríkjunum í kvöld en leikurinn hefst eftir hálftíma. 

Arne Slot er nýtekinn við Liverpool-liðinu og stillir upp áhugaverðu byrjunarliði. 

Hann er með Mohamed Salah, Fabio Carvalho og Harvey Elliot sem þrjá fremstu menn liðsins en spurningin er, hver af þeim verður frammi?

Salah og Carvalho eru kantmenn en Elliot er sóknartengiliður sem getur spilað á miðju sem og á kanti. 

Slot er sennilega að fara að nota einn þeirra sem svokallaða falska níu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert