Liverpool fékk erfiðasta mótherjann

Liverpool fær West Ham í heimsókn.
Liverpool fær West Ham í heimsókn. AFP/Darren Staples

Af stærstu liðum Englands fékk Liverpool erfiðasta mótherjann í 3. umferð deildabikars karla í knattspyrnu en liðið fær West Ham í heimsókn. 

Dregið var í þriðju umferðina rétt í þessu en Manchester United fær Barsnley í heimsókn og Arsenal fær Bolton í heimsókn. 

Þá fær Chelsea Barrow í heimsókn, Manchester City Watford í heimsókn en Tottenham heimsækir Coventry. 

Hákon Rafn Valdimarsson og félagar í Brentford fá Leyton Orient í heimsókn en Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Preston fá Fulham í heimsókn. 

Allir leikir:

Liverpool - Barnsley 
Manchester City - Watford
Arsenal - Bolton
Manchester United - Barnsley
Chelsea - Barrow
Coventry - Tottenham
Wimbledon - Newcastle 
Wycombe - Aston Villa
Walsall - Leicester 
Brentford - Leyton Orient 
Preston - Fulham
Everton - Southampton
QPR - Crystal Palace
Brighton - Wolves
Stoke - Fleetwood
Blackpool - Sheffield Wednesday

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert