Rooney hefur engu gleymt (myndskeið)

Wayne Rooney skoraði stórkostlegt mark í dag.
Wayne Rooney skoraði stórkostlegt mark í dag. AFP

Enska knattspyrnugoðsögnin Wayne Rooney skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu í goðsagnaleik Manchester United gegn Celtic á Old Trafford í dag.  

Rooney kom United yfir á 42. mínútu en Gary Hooper jafnaði metin fyrir Celtic eftir rúman klukkutímaleik.  

Þegar flautað var til leiksloka var staðan 1:1 og þurfti því að fara í vítakeppni. Þar hafði Celtic betur, 5:4.  

Hér fyrir neðan má sjá aukaspyrnmark Rooney úr leiknum í dag.   

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert