Luton krækir í Moses

Hörður Björgvin Magnússon og Victor Moses á HM 2018.
Hörður Björgvin Magnússon og Victor Moses á HM 2018. Eggert Jóhannesson

Victor Moses hefur gengið til liðs við Luton Town í ensku B-deildinni en vængmaðurinn hefur verið án félags síðan samningi hans við Spartak Moskvu lauk í sumar.

Moses lék með Chelsea, Liverpool og Inter Mílanó á árum áður en gekk til liðs við Spartak árið 2021. Nígeríumaðurinn á að baki 220 leiki í ensku úrvalsdeildinni og 38 landsleiki.

Luton er með eitt stig eftir fjóra leiki í deildinni en liðið sýndi góða takta í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þrátt fyrir fall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert