Ødegaard á hækjum

Martin Ødegaard í leik með Arsenal.
Martin Ødegaard í leik með Arsenal. AFP/Benjamin Cremel

Norski miðjumaðurinn Martin Ødegaard fór meiddur af velli í sigri Noregs á Austurríki í Þjóðardeild Evrópu í gær og þarf að fara í myndatöku á ökkla. 

Arsenal mætir Tottenham í Norður-Lundúnaslagnum á sunnudag en Declan Rice verður í leikbanni og Mikel Merino, nýjasti miðjumaður liðsins, er á meiðslalistanum. Líklegt er að Arsenal verði einnig án Ødegaard en myndir af honum á hækjum í morgunsárið benda til þess að meiðslin séu alvarleg.

Thomas Partey og Jorginho eru til taks en varnarmaðurinn Riccardo Calafiori meiddist einnig í landsleikjahléinu og óvíst er með þátttöku hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert