Haaland valinn frekar en Salah

Erling Haaland er leikmaður ágústmánaðar.
Erling Haaland er leikmaður ágústmánaðar. AFP/Darren Staples

Norðmaðurinn Erling Haaland er leikmaður ágústmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Haaland fór frábærlega af stað með Manchester City en hann skoraði sjö mörk í þremur leikjum. 

Hann var valinn fram yfir Egyptann Mohamed Salah, leikmann Liverpool, sem skoraði þrjú mörk og lagði önnur þrjú upp í fyrstu þremur leikjum sínum fyrir Liverpool. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert