Sá yngsti í sögunni stjóri mánaðarins

Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóri Brighton.
Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóri Brighton. AFP/Glyn Kirk

Þjóðverjinn Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóri karlaliðs Brighton, er stjóri ágústmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. 

Hürzeler tók við Brighton fyrir tímabilið en hann kom St. Pauli upp í efstu deild Þýskalands á síðustu leiktíð. 

Hürzeler, sem er aðeins 31 árs gamall, er yngsti þjálfari sögunnar til að stýra liði í fullu starfi í ensku úrvalsdeildinni. 

Brighton er með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar en liðið vann Everton og Manchester United ásamt því að gera jafntefli við Arsenal á útivelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert