Schumacher rekinn

Stoke City hefur ekki gengið vel upp á síðkastið.
Stoke City hefur ekki gengið vel upp á síðkastið. AFP

Enska félagið Stoke City sagði í morgun knattspyrnustjóranum Steven Schumacher upp störfum eftir þriðja ósigur liðsins á nýju tímabili á laugardaginn.

Stoke tapaði þá fyrir nýliðum Oxford United á útivelli, 1:0, og er með sex stig í þrettánda sæti ensku B-deildarinnar eftir fimm umferðir.

Schumacher var aðeins níu mánuði í starfi en hann yfirgaf Plymouth Argyle í desember 2023 til að taka við Stoke.

Lið Stoke hélt naumlega sæti sínu í B-deildinni á síðasta tímabili en það endaði þá í 17. sæti af 24 liðum, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert